Nei þetta er ekki strákur...sérðu ekki rassinn ;)
Eitthvað sem maður festist á
Leitarbox

Klukkan
30.03.2008 18:01:06 / Zóley

Fyrir þá sem vilja lesa meira um London

Ok. Þá er komið að laugardeginum fyrir þá sem vilja lesa meira um ferðir okkar ;)

Laugardagur:
Vöknuðum snemma. Morgunmatur. Hvað annað ;) Underground. Hvað annað. Byrjuðum á því að fara í Primark. Þar er ódýrara en alls staðar annars staðar sem ég hef farið. Vá maður. Ertu ekki í gríninu. Versluðum í fyrsta sinn í ferðinni. Þ.e.a.s. föt. Áherslan lögð á nærföt. Þá vitið þið það. Geng nú í nærfötum sem kostuðu mig 1pund = 155kr. Þá vitið þið það. Ég er ódýr ;) En flott ;) Við verzluðum nú svolítið þarna og ákváðum því að fara með það á hótelið áður en skoðunarferðin hæfist hjá okkur. Skoðunarferðin hófst í National History Museum og það var brjálað að gera. Enda frídagur og ég held að allar fjölskyldurnar hafi ákveðið að verja frídeginum með börnunum í risaeðlusvæðinu. Já við stóðum í röð í 2 tíma. Eiginlega var röð í gegnum allt risaeðlusvæðið. En það var þess virði. Þetta er geggjað flott. Hugsa sér, þetta kvikindi var uppi fyrir nokkrum þúsundum. Vá hvað þau eru stór. Maður var svolítið að átta sig á því þarna hvað þetta eru stórkostlegar verur. Mikilfenglegt. Æðislegt ;)
Natural History Museum
13 metrar þessi, frá nebbaenda til "skotts" enda. Hann sést nú ekki vel á þessari mynd. En þið getið nú séð stærðar muninn á henni og fólkinu í kring. Sjáið fólkið í kring, það er í röðinni inn á risaeðlusafnið. Þetta er svona hlykkjótt röð fram og til baka. Spennandi. En jæja. Vorum nú orðnar sérdeilis þreyttar og svangar bara eftir þetta svæði og ákváðum því að fara. Við komum líka aðallega til að sjá það. Maður verður bara að koma aftur seinna og gefa sér góðan tíma (og kannski ekki koma á svona stórri fríhelgi) og skoða þá restina af safninu.
Þaðan fórum við í hið fræga London Eye. Ekkert smá stórt. Sæll. Ég var orðin pínu spennt að fara, enda auðvitað búin að lesa mér til um það eins og ég gerði deginum áður. Stella og Magga keyptu miða en ég beið í röðinni. Á meðan ég beið fór ég að verða pínu stressuð. Lofthræðslan var farin að laumast um kroppinn. Hjartað sló í smá stund aðeins of hratt. Nei.... ekkert svona. Þú ferð þarna upp. Þegar röðin var komin að okkur þá fór ég að verða stressuð. Við stigum upp í eitt hylkið og aðrir 20 með okkur. Sjæt... ok elskan. Anda. Slaka. Þú ert búin að lesa að það geta 25 verið í hylkinu í einu og það eru nokkur börn hérna og svo ertu líka svo nett sjálf að þetta er allt í lagi ;) Við færðumst hægt ofar og ofar. Hvað haldið þið. Skýin ákváðu að færa sig aðeins á meðan við vorum þarna uppi og leyfðu okkur að sjá London í allri sinni dýrð. Geggjað. Frábært. En vá þegar við vorum komnar hátt upp þá varð svimaði mig pínu. Það er gler í hliðunum og upp í lofti og pínu lítið niður á gólf. Þegar ég horfði þangað þá varð ég pínu stressuð og gekk hægum skrefum eftir hylkinu. Þori að veðja að eitthvað af fólkinu hafi hlegið af mér..... ;)
Var nokkurn vegin svona......
Mín pínu hrædd
En þetta var geggjað.
Þaðan röltum við svo yfir brúnna að Big Ben klukkunni. Pælið í því... það var skoti á brúnni að spila á sekkjapípu... djö var hann flottur. Bara á pilsinu sínu og spilaði svona fallega á "fölsku" sekkjapípuna sína í þessum nístings kulda. Ég gat varla farið í smá stund úr vettlingunum mínum. Get rétt svo ímyndað mér hvernig "stóri" fingurinn hans hafi verið ;)
Hafið þið pælt í því að það eru allir sem halda að turninn heiti Big Ben?? En það er hins vegar klukkan sem heitir það. Pælið aðeins í því að stóri vísirinn er 4 metrar á lengd og litli vísirinn er 3 metrar.... bara svona smá júsless infermation ;)
Eftir þetta vorum við orðnar svangar, þreyttar og kaldar. Svo við ákváðum að kíkja í te til Betu frænku. Ég hringdi í hana og hún sagði okkur að kíkja á sig, væri heitt á katlinum. Við skelltum okkur því til hennar í Buckingham Palace og heitt te og ristað braut með sultu. Hún tók vel á móti okkur þessi elska. Svo indæl. Magga var svo ánægð með hana að hún gaf henni kápuna og hattinn sem hún er í á myndinni. ;) Frábært ;) Lítur svo vel út í því. Æðislegt.
Beta kíkti á okkur þar sem við stóðum fyrir framan Buckingham Palace
Jæja.... eftir mjög langan dag ákváðum að þetta væri gott í bili. Hótel. Ógó sveittur matur. Sturta. Bælið. Takk fyrir daginn hann var geggjaður. Frábær ;)

Á morgun verður bara rólegur dagur elskurnar........

Þar til næst - Vissuð þið að Beta heitir fullu nafni Elizabeth Alexandra Mary og er fædd 21. apríl 1926 (afmæli sama dag og stóra sys - enda eðall ;)) og hún hefur verið drolla síðan 6. febrúar 1952 = 56 ár. Sko hún getur þetta þessi elska -
    - Sóley -


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 23:09:57 / stellan

Segið svo að það gerist ekkert þegar við Sóley eigum í hlut!!

Tvær duglegar úr ÍR-drottningunum fara oftar en ekki í göngutúr eftir fótboltaæfingar. Þær spurðu hvort við Sóley vildum koma með og jú, hvort ef við skelltum okkur ekki bara í klukkutíma göngutúr um Seljahverfið.
Sem er ekki frásögu færandi nema you know us...

Eftir 20 mínútur komum við að risa reykjarmekki þar sem einhverjir krakkabjánar höfðu kveikt í runna. Slökkvilið og allar græjur komu með væli og tilheyrandi og slökktu eldinn.

Og áfram héldu göngugarparnir...

Eftir cirka bát aðrar 20 mínútur komum við að umferðaróhappi þar sem mótorhjól keyrði aftan á bíl. Greyið maðurinn á hjólinu slapp nú vel en var kannski fótbrotinn. Og þá komu sjúkrabílar og lögreglubílar með sínu væli og tilheyrandi og hjálpuðu gaurnum.

Og enn aftur héldu göngugarparnir áfram...

Og á síðasta spölnum sáum við ekkert nema lögreglubíla þeytast um göturnar fram og aftur að leita að strákunum sem kveiktu eldinn í byrjuninni á göngutúrnum.

Og þar með var klukkutími liðinn og við aftur komnar heim. Næst þegar okkur verður boðið í göngutúr ætla ég að hinkra í nokkrar mínútur og spá í því hvort þjóðfélagið höndlar það.


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 23:36:58 / stellan

Vinna!! það er eitthvað minna!!

Úff... er byrjuð að vinna aftur eftir mjööööög langa og þráláta kyrrsetu. Og uppgötvaði það strax hversu mikið ég hef misst úr þoli og getu.

Með öðrum orðum: ,,I´m older, fatter and uselesser..." Nee.. maður má ekki tala svona um sjálfan sig.
And with that said: ,,I´m not older, I´m more experienced.
                              I´m not fatter, there´s just more of me to go around.
                              And I´m not uselesser, just more laid back..."

Og fyrst ég er byrjuð að vinna aftur þá þýðir það líka að ég hef meira frí um helgar. Eða það vonaði ég. Um leið og helgarfríin langþráðu komu gerði ég mér grein fyrir öllu sem hafði setið á hakanum í vetur og hlóðst upp núna... Blebleble.... nenni ekki að taka til.

Hey!!? Ég heyrði um daginn af heimasíðu með "öðruvísi" tónlist. Lögin heita víst eitthvað ákveðið, t.d. Coffee, Alcohol, Marijuana og Hangover. Ooog ef maður velur eitthvert lagið (sem getur verið allt að klukkutími að lengd) þá á lagið víst að hafa sömu áhrif á mann og efnið sem lagði heitir eftir. En catch-ið er að maður verður að hlusta á það allt saman, sem tekur ágætis tíma og það verður að borga fyrir lögin. Hægt er að velja tvö sýnishorn en ef maður vill eitthvað "harðara" then you have to pay the big bucks...

Ég steingleymdi nafninu á síðunni og langaði að athuga hvort e-r þarna úti viti hver slóðin að síðunni er??


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 21:59:12 / stellan

Útsölugeðveiki

Jæja, fyrst ég er svona nokkurn veginn farin að tjá mig aftur hér á veraldarvefnum má ég til með að segja frá mjög svo kjánalegu atviki sem átti sér stað á sunnudaginn síðasta.

Ég og Sóley ákváðum að kíkja í Perluna á lokadegi útsölumarkaðs. Þar voru nokkrar verslanir saman með útsölu, m.a. skóbúð, Puma-búðin og 66°N. Anyway, við komum að fótboltaskóborði hjá Puma-búðinni og sjáum að, ekki bara er 2 fyrir 1 tilboð, heldur líka verðmerkt úr 14.000 kr. niður í 4.000 kr.

„Vá..! Ég er að hugsa um að endurnýja takkaskóna mína” segir Sóley og í því byrjum við að máta skó. Nú þar sem ég er *hóst* alltaaaaaf í boltanum, ákvað ég að athuga hvort eitthvað þarna væri fyrir mig. Eftir u.þ.b. 20 mínútur finn ég loksins skó sem bæði passa og litu út eins og venjulegir íþróttaskór (ekki takkar eða neitt vesen).

But there´s a catch!   Ég fann bara annan skóinn!! Nánar tiltekið, þann vinstri. Svo ég fer að leita og leita eftir hinum skónum þar til Sóley bendir mér á gaur sem stendur hinu megin við borðið, með einn hægri skó í hendinni, og leitar og leitar að hinum. Mjög svo asnalegar aðstæður þar sem við bæði tókum eftir hvor öðru á sama tíma.

„Hvað nú??” hugsaði ég mér. „Á ég að gefa mig og láta hann fá skóinn?? Æææ... ég tími því eiginlega ekki, svo best að rölta aðeins um markaðinn, skoða meira og athuga hvort hann gefist ekki upp og fari.”

Snilldarhugmynd (að mér fannst). En svo leið smá tími.... og meiri tími..... og enn meiri tími. Og alltaf var gaurinn að fylgjast með okkur, til að athuga hvort við værum ekki að gefast upp á að bíða. Eftir tæpan KLUKKUTÍMA tek ég eftir því að hann er við kassann. Borgar, labbar út og skórinn er við hliðina á afgreiðslukassanum!

„YES!! I won! The shoe is miiiine!!” (Or so I thought). Ég geng að stráknum á kassanum og spyr hvort þetta sé ekki hinn skórinn við þennan sem ég er með. Jújú, mikið rétt en því miður.... hann er frátekinn.

Bíddu...!? What...!?? Er það hægt? Að taka annan skóinn frá?? Já greinilega, samkvæmt sölufólki Puma-búðarinnar. Óþarfi er að lýsa hversu heiftarlega svekkt ég var yfir að hafa eytt öllum þessum tíma þarna til einskis (until we came up with a rather devious plan). Til að gera langa sögu aðeins styttri þá fann ég annað par (en ekki eins gott og hitt parið, en fuck it).

En hvað á ég að gera við skóinn? Gera gaurnum bara auðvelt fyrir og rétta sölumanninum hann?? Nei, held nú ekki!! Við röltum yfir í hina skóútsöluna (sem var í sama rými og Puma-búðin). Fundum tómann skókassa, hentum vinstri skónum ofan í og settum inn á milli í haug af nákvæmlega eins kössum.

I know.... we´re bad. En ég átti bara alveg jafnmikinn rétt á þessu skópari og gaurinn...

Ekki nóg með það heldur fengum við afslátt frá afgreiðslustráknum útaf leiðindunum.

Samantekt:

  • verslunarferð  -  2 klukkutímar
  • tvenn skópör virði samtals 30.000kr  -  2.000 kr
  • helvíti gott payback  -  priceless

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 16:32:03 / stellan

Long time no write....

Vá tíminnn líður og ekkert bloggar maður. Æ ekki eins og fólk sé ekki hvort sem er löngu hætt að kíkja á síðuna en what the hell...

 Allt gott er að frétta af okkur. Síðasta prófið var í gær (vúhú!!) og þar með lauk 2/3 af frumgreinanámsferlinum mínum. Svo er það bara sumarskóli FB í júní og halló, stúdentspróf hér kem ég, þ.a.e.s. næstu jól.

Af Sóley er líka allt frábært að frétta. Búin að vera á fullu í bókarskriftum. Svolítið súrealískt að öll þessi vinna síðasta árið komi í búðir um miðjan júní. En krossum bara fingurna og vonum það besta.

 Jæja, ætlum að þjóta núna niður í bæ að skoða tröllskessuna. Magnað dæmi, ekki satt?

 Kveð í bili, vonandi ekki eins lengi og síðast;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 16:17:16 / soley

Grátur

Jæja........ þá er tíminn kominn.

Í fyrradag þá skilaði ég Jacky Hunt *snökt*.  Það var smá kveðjustund á bílaplani B&L og þegar ég skilaði lyklunum þá tók gaurinn bara við þeim (var með annann kúnna) og tók niður nafn og símanúmer og sagðist hringja í mig þegar hann væri búinn að fara í skoðun. Ég bíð enn eftir þessari hringingu. Ég vona að ég þurfi ekki að borga mikið fyrir þessa skoðun og Jacky fljúgi í gegn.

Annars er lítið að frétta. Bara alltaf jafn mikið að gera. Stella að læra, ég að vinna - í skólanum, í Leikhöllinni eða að skrifa.

Girls....... við verðum að fara hittast og taka í 1 eða 2 spil - þá t.d. í fræga stokkinn, ég veit að Lady Connery er til í það ;) Rétt upp hönd sem er game í það? ;)

En jæja ætla að halda áfram að bókast,
eigandi stokksins kveður að sinni - lifið heil ;)

vha......vha........ bless ástin mín...


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 11:44:58 / stellan

ohh my god!!

Jesús... sumir hafa ekkert að gera en þetta er samt geðveikt kúl!!!!

http://video.google.com/videoplay?docid=-274981837129821058


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 14:44:54 / soley

Geggjað....

Það er búið að vera gaman.

Þriðjudagur: fjórhjól, veggjaklifur, axarkast og drumbakast. Endað í matarboði - þindarhakkréttur! ;)
miðvikudagur: hestbak og grill. svolítið aum - datt af hestbaki! ;)
föstudagur: við með matarboð fyrir three amigos. mmmmmmmmmmm
laugardagur: listsýning hjá sys - flott hjá stelpunni - stolt af henni. grill og lopapeysa.

Bara gaman. Takk fyrir okkur. Hlakka til miðvikudagshittings. ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 19:57:55 / soley

Geggjað....

Góða kvöldið!

Það var geggjað gaman úti í NY. Skoðuðum allt sem við vildum skoða og meira til.
En það er mjög gott að vera komin heim. En ég vil bókað fara aftur, væri gaman að fara um jólin. En jæja, verð að fara borða, svangur malli.

yfir og út ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 02:29:22 / soley

NYC

Jæja!

Klukkan að skríða í 02:30 fimmtudagsmorgun. Við erum nokkurn veginn búnar að pakka. Erum nú að tannbursta. Frekar spenntar fyrir NY citý ferðinni. En ég er frekar stressuð. Nú er sko stressið að berjast út úr líkamanum. Ég er nett flughrædd. Bara tæpir 15 tímar í flug. Sem betur fer verður þarna uppáhalds manneskjan mín að halda í höndina á mér og róa mig! ;) Ég vona að það virki vel.

En alla vega. Ætla að fara koma mér í háttinn og róa mig!

Að viku liðinni........... ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 22:56:40 / stellan

insane I tell ya!!!!

já, konan mín ER geðveik!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 08:49:08 / stellan

Góðan daginn allir!

Tíminn flýgur hratt! Það er kominn apríll og ég fer í páskafrí í vinnunni eftir daginn í dag. Í eina viku. Áður en maður veit af þá er kominn maí og ég nálgast þrítugsaldurinn hratt. Svo kemur júní og þá hefst hræðslan því þá er langflug til USA. En svo kemur júlí og þá verða allir glaðir. Alla vega ég! :haha: En alla vega, ég er svo stolt af konunni. Búin að missa 9kg á 9 vikum. Ég er bara búin að missa 5kg, en vonandi fer þetta að koma hjá mér. En pælið í því, farin 14kg af okkar heimili. Að vísu þá vorum við að henda gömlu skólatöskunni og háhæluðu skónum og borguðum í stöðumæli með öllu klínkinu okkar. Kannski hafði það einhver áhrif!! ;) Stella fór í vinnu í morgun eftir rúma viku heima í veikindum. Engin smá veikindi, ógelegur hósti og hiti. Ég fékk hita einn dag, smá hósta (svona sýnishorn frá Stellu), en núna vaknaði ég í morgun með massa hálsbólgu. Tíbíst að um leið og ég byrja í páskafríi þá verði ég veik. Alltaf þegar maður er búinn að plana fríið sitt þá gerist eitthvað svoleiðis. En að vísu þá var ég búin að plana fríið heima fyrir svo það ætti ekki að skipta máli. Ætlaði að fara í geymsluna og henda skólabókunum sem voru í skólatöskunni góðu.
Fann fullt af gömlum veggspjöldum (svona til að vera gamaldags, hvernig á maður annars að skrifa plagggat/platgat/hver veit?!?!;)), aldrei að vita nema það verði hengt upp, nei veistu ég held ekki. Ég held að allir myndu snúa við í gættinni. Vera með MJ á veggnum er kannski ekki cool lengur. Kannski var það aldrei cool. Jú það var töff töff töff. Ég man eftir einu svona löngu og mjóu þar sem MJ var öðrumegin og einhver strandvarðargella hinu megin. Auðvitað var ég með MJ uppi. En í dag, hver veit:!::$ Okei ég var/er nörd. Hver er það ekki. Það sást varla í vegg hjá mér fyrir þessum veggspjöldum þegar ég var yngri. Systir mín var skiptinemi úti í Þýskalandi og sendi mér reglulega bréf með skemmtilegum glaðningi - jebb you know it - MJ is in the house!!!  En nóg um þann svart/hvíta mann. Ég ætla að fara fá mér hafrahringi (ég ætla að nota fínna nafnið á öllum hlutum í dag - taktu þátt í því!! - Það gæti verið áhugasamt að sjá hversu tungulipur maður er!! ;)) (fyrir þann sem ekki fattar þá er það Cheerios) og fjörmjólk. Búa til nesti fyrir langan dag og leggja í hann. Vinnan kallar. "Sóley......Sóley.....þú átt að vera mætt eftir 1 og 1/2 tíma.......það er nóg að gera hjá þér í dag!" (Já ég veit - ég er að tapa mér í súrleika, það lekur súrt úr æðum mér, þarf að fara gera eitthvað, arrrrrg!!!!) Ó mæ vörd. Best að hætta áður en þú snýst í hringi og ferð að reyna naga ímyndaða skottið af þér!
Sjáumst - yfir og út og hreinlega allt í fiskihnút! 8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 21:41:37 / stellan

Gleðilegan föstudag!

Góða kvöldið! :haha:

Allir að horfa á Idolið núna? Dí hvað þetta var illa sungið hjá Alexander, bara hans versta frammistaða hingað til. Þetta var eins og illa vafin rúllupylsa dregin eftir malarvegi í hundsól fest við gamla Lödu sem hefur misst púströrið á leið yfir Kjöl!?! Nei bara að djóka, en þetta var ekki vel gert! Við sitjum við eldhúsborðið, ég að blogga (bæði hérna og fyrir fótboltann) og Stella að búa til geggjað konfekt, já hollustu konfekt, úr gulrótum og sveskjum. Nú er það komið í ofninn og ég hlakka til að smakka (eftir 2 tíma).
Hvejir ætla í bíó á hinsegin bíódögum? Við ætlum að fara á "Stelpur með stelpum" og "100% manneskja". Hver er gay? nei ég meina game? 
Stella er að fá The SVEINSBRÉF á morgun, hvað ég er stolt af konunni og stiganum hennar, sem tekur hálfa íbúðina. Ætli maður geti stillt honum upp við vegg og gengið upp og þá birtist hurð á vegginn og þá geti maður farið í eitthvert draumaland..... svona eins og í Narnia? Neihhhh bara svona að pæla hvort að stiginn gæti haft tilgang á heimili okkar. Bara alveg eins og með lokaritgerðina mína þá er hún alltaf til og ég mun glugga einhvern tímann í hana (eftir svona 1-2ár, fékk alveg nóg þegar ég skilaði henni) og ég mun aldrei henda henni. Hún er svona stoltið manns-hingað til. Þá er stiginn eins, en hann tekur bara svolítið pláss, verðum bara að byggja geymslu utan um hann. Eða alla vega Stella. Ég mun bara rétta henni naglana og gefa henni kalt límonaði! Í bikiníi! Eða löggubúningnum!*tíhí* ;)  Hvað segið þið, hvort ætti ég að velja? En alla vega, nóg af bulli sulli. Gó Ína, ég held með þér!!! 8) Best að hætta þessu áður en ég verð súr og allir hætta að lesa bloggið hennar Stellu. En ég var búin að segjast ætla að blogga með henni.....so enjoy this sýra! Sí jú in tú sjeiks of a lambs teil! ;)

Yfir og út, allt í hnút kveðja Sóley


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 18:55:19 / stellan

Well... what do you know...

Hlaut að koma að því einhvern tímann.... en.....

Ég er formlega hætt að blogga... I don´t nenn it any-lengur....


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 21:46:31 / stellan

*geisp*

það er ekkert skemmtilegt að blogga...

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5